Félagar í Gídeonfélaginu hér í Vestmannaeyjum munu fara mikinn í Guðsþjónustu sunnudagsins í Landakirkju, sem hefst eins og vant er kl. 14:00. Félagarnir munu lesa úr ritningunni ásamt því að Geir Jón �?órisson mun predika. Kitty Kovács leiðir svo Kór Landakirkju í sálmasöngnum. Prestur verður Sr. Guðmundur �?rn Jónsson.