Gísli Stefáns - Tekur ekki þátt í prófkjöri

Ég hef ákveðið að taka ekki þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum sem haldið verður föstudaginn 13. mars nk. Ég gegni mörgum öðrum hlutverkum og tel nauðsynlegt á þessum tímapunkti, eftir 8 ár í bæjarmálunum að ég þurfi að huga betur að þeim.

Ég hef fulla trú á flokknum hér í Eyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum og tel að með sterkum lista og samhentum hópi verði meirihlutinn okkar að þeim loknum. Ég mun ekki láta mitt eftir liggja í kosningabaráttunni og styðja þá af fullum krafti til sigurs sem koma munu til að verma sæti á listanum.

Framundan eru ýmsar áskoranir fyrir Sjálfstæðisflokkinn, þá sér í lagi á landsvísu og þar vil ég leggja meira af mörkum. Ég mun áfram gegna hlutverki mínu sem varaþingmaður í Suðurkjördæmi með það að leiðarljósi að halda á lofti Sjálfstæðisstefnunni og gildum hennar, stefnu sem hefur verið leiðarstef í að byggja upp öflugt Ísland.

Af Facbooksiðu Gísla.

 

Nýjustu fréttir

Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.