Gjaldþrot Play hefur mjög víðtæk áhrif
PLAY airlines 1
Play þanndi sína vængi austan hafs og vestan en náði því miður ekki þeim árangri sem lagt var upp með.

Stjórn Fly Play hf, hefur ákveðið að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður. Þetta kemur fram  í tilkynningu frá Play. Þar segir:

„Stjórn Fly Play hf. hefur tekið þá ákvörðun að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður. Unnið verður náið með yfirvöldum og starfsfólki við að innleiða þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að leggja niður starfsemi félagsins. Ástæður þessarar ákvörðunar eru margar, þ.m.t.; rekstur félagsins hefur lengi gengið verr en vonir stóðu til, flugmiðasala hefur ekki gengið vel síðustu vikur og mánuði í kjölfar neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar um reksturinn og þá hefur ríkt ósætti á meðal hluta starfsmanna félagsins vegna breytinga á stefnu þess.“

Þetta er mikið áfall fyrir þjóðfélagið, 400 starfsmenn félagsins, þúsundir farþega sem eru strandaglópar víða um heim og hafa keypt far með félaginu, samstarfsaðila félagsins og ferðaþjónustu í landinu. Má gera ráð fyrir að Eyjafólk sé í hópi þeirra sem nú þurfa að endurskipuleggja heimför eða hugsa dæmið upp á nýtt eftir að hafa keypt farmiða með félaginu.

Nýjustu fréttir

Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í febrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.