
Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn og sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri flokksins á föstudaginn getur verið ánægður með aðsókn á fundi sem hann boðaði til í Akóges í kvöld.
Alls mættu milli 80 og 90 manns á fundinn þar sem Eyþór kynnti sig um leið og hann fór yfir helstu mál sem eru á borði bæjarstjórnar. Samgöngumál eru sígilt viðfangsefni en þar ber hæst, að í vor er von á skýrslu danskrar straumfræðistofnunar um Landeyjahöfn. Þar verða m.a. leiðir til að minnka sandburð í höfninni en dæling kostar á milli 500 og 600 milljónir króna á ári.
Eitt stærsta málið er vatnslögnin sem lögð verður í ágúst á þessu ári. Heildarkostnaður er tæpir þrír milljarðar og hefur ríkið fallist á að greiða 800 milljónir. Bæjarstjórn lítur á lögnina sem almannavarnamál og því beri ríkinu að leggja meira til. Ef ekki lendir á bæjarbúum að greiða þá rúmlega 2 milljarða sem upp á vantar.
Eyþór nefndi fleiri verkefni, m.a. stórskipahöfn, skólamál, íþróttaaðstöðu og viðhald á fasteignum bæjarins. Allt séu þetta brýn verkefni en tekjur bæjarins hverju sinni muni ráða för. Lagði hann áherslu á að öflugt atvinnulíf er undirstaða velferðar og ný stoð sé að verða til með uppbyggingu Laxeyjar.
Eyþór er bjartsýnn á góða þátttöku í prófkjörinu og sagði að tvöfalt fleiri hefðu kosið utan kjörfundar nú en fyrir fjórum árum.