Gríðarlega mikilvægur undirbúningur fyrir sumarið
Um páskana lögðu níu peyjar land undir fót og fóru til Spánar í golfæfingaferð með þjálfara sínum Einari Gunnarssyni golfkennara Golfklúbbs Vestmannaeyja. �?eir voru við æfingar í tíu daga við frábærar aðstæður á golfsvæði sem heitir La Sella og er staðsett miðja vegu á milli borganna Alicante og Valencia. Allur aðbúnaður var til fyrirmyndar og nutu peyjarnir sín í botn við æfingar.
Aðspurður segir Einar að slík ferð sé gríðarlega mikilvæg í undirbúningi fyrir sumarið en peyjarnir hafa stundað æfingar í allan vetur í inniaðstöðu Golfklúbbs Vestmannaeyja. �??Með því að fara í æfingaferð í aðdraganda sumarsins gefst okkur tækifæri að æfa hluti sem erfitt er að æfa yfir vetrartímann á Íslandi auk þess að ferð sem þessi er nýtt vel í að spila golf á grænu grasi sem við höfum ekki séð í marga mánuði heima í Vestmannaeyjum. Svo má ekki gleyma félagslega þættinum en ferðir sem þessar þjappa hópnum vel saman og ég verð nú bara að nefna að þessir peyjar eru algerlega til fyrirmyndar og eru sjálfum sér, golfklúbbnum og Vestmannaeyjum til sóma,�?? segir Einar.
Framundan er áframhaldandi æfingar og undirbúningur fyrir keppnistímabilið á unglingamótaröðum GSÍ. Peyjarnir munu taka þátt í fimm mótum í sumar og keppa á meðal bestu unglinga landsins á Íslandsbankamótaröðinni. Auk þess taka þeir þátt í Íslandsmóti golfklúbba í unglingaflokki en 18 ára flokkurinn verður einmitt leikinn á Vestmannaeyjavelli um miðjan ágúst og eru Eyjamenn hvattir til að mæta á völlinn og fylgjast með GV peyjunum.

Nýjustu fréttir

Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.