Eins og áður hefur komið fram skoraði Gunnar Heiðar Þorvaldsson eitt marka Vålerenga í 3-0 sigri liðsins á Ham-Kam í fyrsta leik tíundu umferðar norsku úrvalsdeildarinnar í gær. Svo gæti farið að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir félagið vegna þess að hlé verður gert á deildinni þegar tíundu umferðinni lýkur, til 27. júní, um það leyti sem lánssamningur hans við félagið rennur út. Hann útilokar hinsvegar ekki að verða um kyrrt sé vilji til þess að hálfu félagsins.