Hart deilt um niður­stöðu kosn­inga
�??Mér finnst þetta sorg­legt, svona er ekki hægt að líða,�?? seg­ir Guðmund­ur Kristjáns­son út­gerðarmaður um niður­stöðu aðal­fund­ar Vinnslu­stöðvar­inn­ar hf. sem hald­inn var á miðviku­dag­inn. �?etta kemur fram á mbl.is í dag.
Sam­kvæmt heim­ild­um Morg­un­blaðsins spruttu upp mikl­ar deil­ur á fund­in­um þegar kjósa átti stjórn­ar­menn í aðal­stjórn og vara­stjórn. Var at­kvæðaseðlum dreift til fund­ar­manna og hafði hver maður at­kvæði í sam­ræmi við eign sína í fé­lag­inu.
�?egar taln­ingu var lokið kom í ljós að tvær kon­ur og tveir karl­ar voru kom­in í aðal­stjórn en tveir menn voru jafn­ir um fimmta sætið. Einnig kom í ljós að einn at­kvæðaseðill hafði ekki skilað sér í kjör­kassa. Hóf­ust þá deil­ur um það hvort kasta ætti hlut­kesti um það hver yrði fimmti maður í stjórn eða hvort hlut­hafa­fund­ur ætti að ákveða það. Var fund­ar­stjóri þá kallaður til að kveða upp úr um það en ákvað hann þess í stað að ógilda kosn­ing­una þegar ljóst varð að einn at­kvæðaseðill hafði ekki skilað sér til taln­ing­ar, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Nýjustu fréttir

Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.