Háskóli sem hefur mikinn metnað fyrir sínu starfi
Björg �?órðardóttir mun útskrifast á næstu dögum úr Sjávarútvegsfræði í Háskólanum á Akureyri. Björg hefur undanfarin þrjú ár stundið nám við skólann og skilaði á dögunum lokaverkefni um hreinsun á frárennslisvatni frá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum. Hér má sjá brot úr viðtalinu við Björgu en viðtalið birtist í nýjasta tölublaði Eyjafrétta.
Björg segir að sér hafi gengið mjög vel en námið er fjölbreytt og skemmtilegt að hennar sögn. �??Námið er eiginlega þrískipt og skiptist í raunvísindanám, viðskiptafræðinám og sér nám um sjávarútveg. �?g hef tekið hina ýmsu áfanga, til dæmis rekstrarhagfræði, sjávarlíffræði, efnafræði, stofnstærðarfræði fiska og veiðitækni. Námið er mjög fjölbreytt og skemmtilegt, sumt er þó skemmtilegra en annað og ég hef komið víða við,�?? sagði Björg en líffræðin er það sem heillaði hana mest. �?? Mér fannst mjög gaman í sjávarlíffræði, og öllum líffræði áföngum. Í líffræðinni erum við mikið í verklegu námi til dæmis í matvælafræði þar leituðum við að örverum í matvælum, gerðum geymsluþolstilraun á þroskflökum og margt fleirra. Í sjávarlíffræðinni voru líka skemmtileg verkefni, við fórum út á sjó að taka botnsýni og leita af lífverum í sýnunum, busta ormum og fleiru sem lifir á botninum í Eyjafirði. Við lásum svo úr kvörnum á fiskum sem var mjög áhugavert, en það er hægt að telja hringina í kvörnunum til að sjá aldurinn líkt og í trjám en með því að vita aldur fiska er verið að setja grundvöll fyrir mati á stofnstærð. Í Sjávarlíffræðinni erum að læra um lífverurnar og vistfræðinni í kringum þær, tegundir af sjó, þörungum og allt sem tengist hafinu.�??
Mikil metnaður á Akureyri
�??Háskólinn á Akureyri er mjög góður skóli sem tekur vel á móti fjarnemum en helmingur nemenda eru fjarnemar, þeir leggja upp með öflugt og gott fjarnám. Mér fannst ég aldrei vera metin minna en aðrir staðnemendur, ég var alltaf velkomin og það var vel tekið á móti mér. Skólinn hefur mikinn metnað fyrir sínu starfi. Kosturinn við að fara í minni Háskóla er að allt er mun persónulegra, kennararnir hugsuðu vel um okkur og pældu í því hvað við vorum að gera og sýndu því áhuga. ,�?? sagði Björg en hún ferðaðist landshluta á milli til að sækja staðlotur og verknám. �?? �?g komst alltaf frá Eyjum en einu sinni komst ég ekki frá Reykjavík, þá var ófært með flugi. �?trúlegt en satt þá var það bara í þetta eina skipti sem ég komst ekki á réttum tíma og missti af einum degi.�??
Aðsóknarmet slegin á hverju ári
�??Sjávarútvegsfræðin hefur undanfarið verið mjög fámenn, núna á hverju einasta ári er þvílík aukning í nýskráningum og aðsóknarmet eru alltaf að falla. �?g hvet alla til að skoða námið og kynna sér það. Að vera í fjarnámi frá Háskólanum á Akureyri er frábært. �?að á alls ekki ekki að láta stoppa sig að skólinn sé á Akureyri.�??
Björg skrifaði lokaverkefni sitt um rannsókn á hreinsun á frárennslisvatni hjá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum. Brot úr ritgerðinni sem og viðtalið í heild má sjá í Eyjafréttum.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.