Skákkennslu krakka í Grunnskóla Vm. á vegum Taflfélags Vm. lauk með jólapakkamóti 15. des. sl. í skákheimili TV við Heiðarveg. Alls tóku 20 krakkar þátt í mótinu en mun fleiri hafa tekið þátt í skákkennslu TV í haust. Heiðmar Þór Magnússon var í 1. sæti í eldri flokknum , Ernir Heiðarsson í öðru sæti og Aron Gunnar Einarsson í 3ja sæti. 1.-3. bekk GRV var Jón Bjarki Eiríksson með flesta vinninga, Gauti Harðarson í 2. sæti og Gabriel Gauti Gunnarsson í 3. sæti. Myndin er tekin í mótlok, en Vinnslustöðin er aðal styrktaraðili TV við skákkennslu grunnskólabarna. Leiðbeinendur eru þeir félagar Sigurður Arnar Magnússon, Eyþór Daði Kjartansson pg þeim til aðstoðar við kennsluna er Guðmundur Sigfússon. Skákkennsla TV fyrir grunnskólabörn hefst á í janúar 2020 og munu skákkennsar koma því á framfæri við nemendur í Grunnskóla Vm.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.