Á fundi bæjarráðs í hádeginu í gær 17. desember var tekin fyrir viðauki við fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2019. Samkvæmt viðaukanum eykst heildarfjárfesting samstæðu Vestmannaeyjabæjar um 98 m.kr. Á árinu 2019 samþykkti bæjarráð og framkvæmda- og hafnarráð nýjar fjárfestingar og framkvæmdir fyrir alls 108,5 m.kr., þar af 55 m.kr. til viðgerða á þaki Íþróttamiðstöðvar og 40 m.kr til viðgerða á stálþili á Friðarhafnarkanti. Vegna tilfærslna milli fjárfestingarverkefna hjá samstæðu Vestmannaeyjabæjar nægir að hækka heildarfjárfestingar ársins um 98 m.kr.
Í rekstri B-hluta samstæðu Vestmannaeyjabæjar er viðauki sem er tilkominn vegna þess að rekstur Náttúrustofu Suðurlands fór yfir til Vestmannaeyjabæjar á árinu 2019. Rekstrarafgangur Náttúrustofunnar eykur afkomu samstæðunar um tæpar 4,9 m.kr. frá upphaflegri áætlun. Ennfremur eru gerðar leiðréttingar á tekju- og gjaldamillifærslum á milli stofnana bæjarins en þær hafa engin áhrif á rekstrarafgang bæjarsjóðs.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2019.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.