Heilsíðumynd af Eyjakonunni Önnu Maríu Halldórsdóttur prýðir nýjasta hefti tímaritsins Fit and Firm, sem gefið er út af WBFF líkamsræktarsambandinu. Anna María náði einmitt frábærum árangri í Evrópumóti WBFF sem fór fram á Íslandi í nóvember en þar sigraði hún í Female Diva Bikini Model flokki og endaði í þriðja sæti í Female Diva Fitness Model flokki. Í kjölfarið fékk hún svokallað Pro Card, sem gefur henni rétt til að taka þátt í Heimsmeistaramótinu í Kanada síðar á þessu ári.