Herjólfur í slipp í september
Herjólfur í slippnum.

Áætlað er að Herjólfur IV fari í slipp 8. september nk. í Hafnafirði. Gert er ráð fyrir að ferjan verði frá í tvær vikur gegn því að ekkert óvænt komi upp og mun ferjan Baldur leysa af á meðan. Um er að ræða reglubundinn slipp, þar sem hefðbundin slippverk verða unnin ásamt verkum sem þarf að framkvæma á meðan ferjan er ekki í áætlun auk þess sem skipið verður málað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Í ljósi þess að Baldur tekur ekki eins marga farþega og farartæki og Herjólfur IV hefur stjórn Herjólfs tekið þá ákvörðun að þann tíma sem Baldur leysir af kemur hann til með að sigla átta ferða áætlun til þess að skerða  flutningsgetu sem minnst.

Farþegar sem áttu bókað fyrir hafa verið færðir í eftirfarandi ferðir:

Frá Vestmannaeyjum:
07:00 – Óbreyttur tími
09:30 – Nýr brottfaratími 09:00
12:00 – Nýr brottfaratími 11:00
14:30 – Nýr brottfaratími 16:00
17:00 – Nýr brottfarartími 18:00
19:30 – Nýr brottfaratími 20:00
22:00 – Óbreyttur tími
13:00 – Ný ferð í áætlun

Frá Landeyjahöfn:
08:15 – Nýr brottfaratími 08:00
10:45 – Nýr brottfaratími 10:00
13:15 – Nýr brottfaratími 12:00

15:45 – Nýr brottfaratími 17:00
18:15 – Nýr brottfaratími 19:00
20:45 – Nýr brottfaratími 21:00
23:15 – Nýr brottfaratími 23:00
14:00 – Ný ferð í áætlun

Nýjustu fréttir

Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.