Herjólfur hóf aftur áætlunarsiglingar milli lands og eyja í morgun. Skipið kom til Vestmannaeyja klukkan sex í morgun eftir rúmlega sólarhringssiglingu frá Akureyri í slæmu veðri. Skipverjar segja að versta veðrið hafa verið við Reykjanesskaga og að endurbættur veltiuggi skipsins hafi komið að góðum notum. Annar tveggja veltiugga Herjólfs var lagfærður við viðhald skipsins á Akureyri undanfarna daga. Veltiugginn bilaði fyrir tæpu ári þegar talið er að skipið hafi siglt á hval.