Valur fór með sigur af hólmi í Eyjum í dag þegar liðið sótti ÍBV heim í N1 deild kvenna. Lokatölur urðu 32:39 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 18:21. Munurinn í leikslok gefur þó ekki rétta mynd af gangi leiksins því Eyjastúlkur veittu Íslandsmeisturunum verðuga keppni en vantaði herslumuninn til að jafna metin.