Að því er fram kemur á Fréttavef Suðurlands fauk töluvert af heyi í utanverðum Mýrdal sl. miðvikudag 30. júlí í hvassri austnorðaustanátt.
Mikill breiskjuþurkur var búinn að vera og var hey því orðið skraufaþurrt og létt í sér.
Þeir sem ekki sneru um morguninn sluppu betur. Hey fauk í það minnsta á 5 bæjum. Mikið fór í skurði og á girðingar og er mikil vinna að hreinsa það upp.