Jólahvísl vill þakka öllum þeim tóku þátt í tónleikunum þann 21. des síðast liðinn á einn eða annan hátt, fyrir tíma ykkar og þekkingu. Þakkir til þeirra sem lánuðu okkur græjur og leikmuni, Ingó hjá Kalla Kristmans fyrir að styrkja okkur með veitingum og síðast en ekki síst tónleikagestum sem fylltu salinn. 140.000 kr söfnuðust í baukinn sem fór óskipt í sjóð hjá Landakirkju til hjálpar þeim sem minna meiga sín hér í Vestmannaeyjum.
Kærleikskveðja Jólahvísl.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.