STÆRSTI steinninn sem féll úr Ingólfsfjalli í jarðskjálftanum 29. maí sl. reyndist vera 50 rúmmetrar og hafa skoppað rúmlega 370 metra frá brotstálinu í sunnanverðu Ingólfsfjalli.
Þetta kom fram í mælingu starfsmanna Veðurstofunnar, sem héldu í Ölfus um helgina til að kanna ummerki skjálftans. Tóku þeir niður staðsetningarhnit stærstu hnullunganna og áætluðu stærð þeirra.