Hörku leikir á móti tveimur góðum liðum
Eyjamenn höfðu betur gegn Gróttu þegar liðin mættust í 20. umferð Olís-deildar karla á fimmtudaginn. Leiknum lyktaði með tveggja marka sigri heimamanna, 32:30, þar sem Sigurbergur Sveinsson var atkvæðamestur með tíu mörk. Strákarnir voru síðan aftur mættir til leiks á sunnudaginn en þá mættu þeir Aftureldingu í Mosfellsbæ. ÍBV sigraði leikinn 31:24 eftir að hafa verið yfir 17:14 í hálfleik. Theodór Sigurbjörnsson átti enn einn stórleikinn í vetur og skoraði 12 mörk. Með sigrinum hafði ÍBV sætaskipti við Aftureldingu en liðin eru jöfn að stigum í þriðja og fjórða sæti með 25 stig þegar sjö umferðir eru eftir.
�??Báðir þessir leikir voru hörku leikir á móti tveimur góðum liðum,�?? segir Magnús Stefánsson fyrirliði ÍBV aðspurður út í leikina tvo. �??�?að hefur nú sýnt sig oftar en einu sinni í vetur að staða liðanna í deildinni segir ekkert endilega til um það hvernig leikurinn muni spilast. En mér fannst við vera hrikalega flottir í báðum þessum leikjum. Við erum að fá inn menn eins og Begga, Robba og Agga til baka úr meiðslum og þeir eru óðum að komast í rétta gírinn sem og markmennirnir okkar, þeir eru að hitna og eru farnir að skella í lás. Í raun og veru var enginn svakalegur munur á þessum tveimur leikjum. Góði kaflinn okkar er alltaf að lengjast og hann hélt áfram að gera það gegn Aftureldingu ætli það sé ekki stærsti munurinn.�??
�?ið eruð taplausir eftir áramót með fjóra sigra og eitt jafntefli. Er nokkuð sem bendir til þess að þið séuð að fara að gefa eftir? �??�?etta hefur farið vel af stað fyrir okkur núna eftir áramót og það er mikill stígandi í leik okkar. Menn eflast með hverjum leiknum svo það er bara spennandi að sjá hvað gerist næstu vikurnar,�?? segir Magnús að lokum.

Nýjustu fréttir

ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.