Hrottalegt nauðgunarmál sent aftur í rannsókn
Héraðssaksóknari sendi fyrr í vor gróft nauðgunar- og líkamsárásarmál úr Vestmannaeyjum aftur til lögreglu til framhaldsrannsóknar. Meira en eitt og hálft ár er liðið frá árásinni. Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari vill ekki greina frá því hvað nákvæmlega þurfti að láta rannsaka frekar �?? hún segir að leiða þurfi tiltekin atriði betur í ljós og um leið og því er lokið verði vonandi hægt að afgreiða málið frá Héraðssaksóknara. Ruv.is greinir frá.
Málið kom upp aðfaranótt 17. september 2016. �?á fannst kona á fimmtugsaldri meðvitundarlítil í húsgarði í Vestmannaeyjum. Maður á þrítugsaldri var handtekinn skömmu síðar grunaður um að hafa beitt konuna hrottalegu ofbeldi og nauðgað henni. Hann sat í gæsluvarðhaldi um skeið uns kröfu lögreglunnar í Vestmannaeyjum um framlengingu þess var hafnað af dómstólum.
Konan var flutt þungt haldin með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi. Hún var svo bólgin í andliti að hún gat ekki opnað augun og líkamshitinn var 35,5 gráður þegar að henni var komið. Lögregla telur að hefði hún ekki fengið aðstoð hefði hún getað dáið.
Konan fór úr landi fljótlega eftir árásina og lögreglu reyndist lengi vel erfitt að ná tali af henni. Í fyrrasumar var hins vegar tekin skýrsla af henni þar sem hún hefur dvalið erlendis.
Rannsókn lögreglunnar í Vestmannaeyjum lauk í október síðastliðnum. Málið fór þá í ákæruferli hjá embættinu og þaðan til Héraðssaksóknara um áramót. Héraðssaksóknari skoðaði málsgögnin og ákvað 27. febrúar að vísa málinu aftur til lögreglu til framhaldsrannsóknar.

Nýjustu fréttir

Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.