Þessi spurning skiptir okkur öll máli. Hún snýst ekki aðeins um stjórnmál í aðdraganda kosninga, heldur um hvernig framtíð sem við viljum skapa saman. Fyrir fjölskyldurnar okkar, börnin og samfélagið í Vestmannaeyjum í heild. Nú gefst okkur einstakt tækifæri til að staldra við, hlusta hvert á annað og móta sameiginlega sýn.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins bjóða Vestmannaeyingum á málefnafund á morgun, laugardag frá klukkan 10 til 12 í Ásgarði.
Markmið fundarins er skýrt: að skapa vettvang fyrir opið samtal um það hvert við viljum stefna og hvernig við getum sem best byggt upp samfélagið okkar til framtíðar.
Á fundinum verður lögð áhersla á að hlusta á raddir íbúa. Hver einasta skoðun skiptir máli, hvort sem hún snýr að atvinnumálum, menntun, þjónustu, uppbyggingu eða lífsgæðum almennt. Það er einmitt í samtalinu sem bestu hugmyndirnar kvikna og sterkasta stefnan mótast.
Við trúum því að góð stefna verði ekki til í einangruðum hópi frambjóðenda, heldur í samvinnu við fólkið sem býr og starfar í samfélaginu okkar. Þess vegna er fundurinn ekki aðeins kynning, heldur umræður þar sem hugmyndir koma fram og stefnan þróast.
Með því að taka þátt í stefnumótun okkar frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins getum við öll haft áhrif.
Svarið við spurningunni „Hvert viljum við stefna?“ liggur hjá okkur öllum. Við hvetjum því alla eyjabúa til að mæta, taka þátt og leggja sitt af mörkum. Saman getum við mótað skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn. Fyrir fjölskylduna þína og samfélagið okkar.
Óskar Jósúason 4. sæti
Kjartan Vídó 6. sæti