KSÍ hefur staðfest ráðningu sína á næsta kvennalandsliðsþjálfara, það er Jón Þór Hauksson sem tekur við starfinu. Jón Þór var síðasti þjálfari hjá Stjörnunni í Pepsi deild karla en áður starfaði hann hjá ÍA. Freyr Alexandersson lét af störfum sem þjálfari liðsins í haust en síðan hefur KSÍ unnið í málinu. 433.is greindi frá.
Ian Jeffs verður aðstoðarmaður Jóns Þórs með liðið. Jeffs var að stýra kvennaliði ÍBV áður. ,,Ég er ánægður með að hafa fengið Jeffs mér til aðstoðar, hann hefur víðtæka reynslu í þjálfun.“
Kvennalandsliðið hefur náð góðum árangri síðustu ár en fyrsta verkefni Jóns verður að koma liðinu á EM árið 2021. Samningar þeirra eru til tveggja ára. Fyrstu leikir þeirra með liðið verða í janúar en þeir fá æfingahelgi í næsta mánuði.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.