Stelpurnar í ÍBV eru komnar með bakið upp við vegg í úrslitakeppni Olís-deildarinnar eftir tap gegn Fram í gærkvöldi. Fram leiðir nú einvígið með tveimur sigrum gegn engum og geta klárað það á fimmtudaginn kemur í Safamýrinni.
Fram byrjaði leikinn mun betur, skoraði fyrstu fjögur mörkin og var komið með 3-9 forystu eftir fjórtán mínútna leik. Sóknarleikur ÍBV lagaðist þegar leið á hálfleikinn og náðu tvívegis að koma muninum niður í eitt mark. Framstúlkur skiptu hins vegar aftur um áður en fyrr hálfleikur kláraðist og leiddu 14-20 þegar gengið var til leikhlés.
Síðari hálfleikur var svo meira af því sama, hélt Fram undirtökunum allan leikinn og náði mest í átta marka forskoti. Lokatölur 29-34 Fram í vil, þær þurfa því aðeins einn sigur til viðbótar til að klára einvígið.
Ester Óskarsdóttir var markahæst í liði ÍBV með 8 mörk. Aðrir markaskorarar voru Greta Kavaliauskaite – 6, Arna Sif Pálsdóttir – 6, Sunna Jónsdóttir – 3, Sandra Dís Sigurðardóttir – 3, Karolína Bæhrenz Lárudóttir – 2 og Kristrún Hlynsdóttir – 1. Andrea Gunnlaugsdóttir varði átta skot í marki ÍBV.
Þriðja viðureign liðana fer fram í Safamýrinni á fimmtudaginn kl. 18.30 og dugir Eyjastúlkum ekkert annað en sigur ellegar sumarfrí framundan.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst