ÍBV sigraði Gróttu með fjórtán marka mun í leik liðanna í Vestmannaeyjum í dag. ÍBV er þá komið með 24 stig í fjórða sæti deildarinnar.
Leikurinn var aldrei spennandi og þá sérstaklega ekki eftir að Lovísa Thompson fékk rautt spjald. Lovísa hrinti á eftir Söndru Dís Sigurðardóttur sem hugðist skora sitt fjórða mark á 12. mínútu leiksins. Sandra var virkilega óheppin og lenti ótrúlega illa. Dómarar leiksins sáu engan annan kost í stöðunni en að gefa Lovísu rauða spjaldið.
Markahæstar hjá ÍBV voru þær Sandra Erlingsdóttir, Ester �?skarsdóttir, Karólína Bæhrenz og Greta Kavaliuskaite. Sandra gerði 10, Ester 7, Greta og Karólína 5. Hjá Gróttu skoraði Savica Mrkik langmest eða 9 mörk.