ÍBV vann toppliðið
ÍBV gerði sér lítið fyrir og vann FH með átta marka mun í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Fyrirfram var reiknað með hörku leik, en ÍBV var í 3. sæti með 26 stig á meðan FH var með fimm stigum meira í toppsætinu. ÍBV var yfir all­an tím­ann og settu þeir tón­inn strax í byrj­un og komust í 4:1, FH tókst aldrei að jafna eft­ir það. �?egar flautað var til hálfleiks var staðan 20-13. Gestirnir byrjuðu betur í seinni hálfleik og minnkuðu muninn í þrjú mörk strax í upphafi. En ÍBV átti leikinn svo undir lokinn. Lokatölur 37-29. Theodór Sigurbjörnsson skoraði flest mörk fyrir ÍBV, 9 mörk, þar af þrjú úr vítum. �?ar á eftir kom Agnar Smári Jónsson með 6 mörk.
FH heldur toppsætinu en ÍBV eru nú komnir í 2. sæti deildarinnar með 28 stig og eiga leik til góða á FH og geta jafnað þá að stigum ef þeir vinna þann leik.

Nýjustu fréttir

Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Allt undir hjá ÍBV gegn KA í dag
ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.