Ísfélagið áfram einn af aðalstyrktaraðilum KFS
Samningurinn handsalaður. Guðmundur Árnason frá Ísfélaginu og Hannes Gústafsson frá KFS. Ljósmynd/aðsend.

Ísfélagið hefur alltaf staðið vel við bakið á KFS og verður engin breyting þar á. KFS hefur undanfarin ár byggt upp eyjalið með áherslu á að gefa ungum efnilegum knattspyrnumönnum góðan undirbúning fyrir frekari frama á fótboltavellinum eða út í lífið.

Má þar með nefna unga drengi eins og Tómas Bent, Arnar Breka, Halldór Pál o.s. frv.  Hjá KFS hafa fyrst og fremst leikið ungir leikmenn í bland við nokkra eldri reynslumeiri leikmenn sem hafa miðlað reynslu sinni áfram. Hanni Harði formaður KFS hafði þetta að segja um samstarfið.

,,Við hjá KFS erum afskaplega þakklátir Ísfélaginu fyrir þeirra stuðning í gegnum tíðina ásamt öðrum stuðningsaðilum, með þessum styrkjum væri ekki hægt að halda úti þessu starf, þökkum Ísfélaginu innilega fyrir frábæran styrk. Allir á völlinn í sumar og styðjum við okkar frábæru drengi. Áfram KFS” segir í tilkynningu.

Nýjustu fréttir

Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.