
Loðnuveiðar ganga vel hjá Ísfélaginu þessa dagana og hefur stærstur hluti úthlutaðs kvóta þegar verið veiddur. Í samtali við Eyjafréttir segir Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, að skip félagsins hafi nú veitt um 20.000 tonn af tæplega 30.000 tonna kvóta. „Þannig að við eigum um 10.000 tonn eftir að veiða,“ segir Eyþór.
Hafin var hrognataka á sunnudag og hafa skipin landað í röðum hér í Vestmannaeyjum frá því vinnslan hófst. Að sögn Eyþórs er hrognafyllingin nú komin í svokallað fullþroskastig fyrir Japansmarkað.
„Hrognafyllingin er komin í það sem kallast fullþroskað fyrir Japansmarkað og er þá talað um um 23% hrognafyllingu,“ segir hann. Það þýðir að loðnan er orðin sérstaklega verðmæt til vinnslu á hrognum, sem eru ein mikilvægasta afurð loðnuvertíðarinnar.
Síðustu daga hefur veiðin farið fram rétt norðan við Snæfellsnesið. Eyþór segist bjartsýnn á framhaldið, sérstaklega í ljósi frétta af góðum loðnutorfum suður með landinu síðustu daga.
„Ég á ekki von á öðru en að kvótinn náist,“ segir hann og bætir við að vonir standi til að loðna gangi inn í Faxaflóa í næstu viku, þar sem hún verði þá veidd til hrognatöku.
Hér að neðan má sjá myndband frá síðasta túr Heimaeyjar, þar sem Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta var um borð. Nánar verður fjallað um þá veiðiferð síðar hér á vefnum og í næsta blaði Eyjafrétta. Myndvinnsla var í höndum Halldórs B. Halldórssonar.