Íslandsmót golfklúbba fór fram dagana 17.-19. ágúst og var keppt samtímis á mörgum völlum meðal annars í Eyjum.
Piltalið 18 ára og yngri kepptu í Vestmannaeyjum, og á sama stað kepptu stúlknalið 18 ára og yngri, og telpnalið 15 ára og yngri. Drengjalið 15 ára og yngri keppti hinsvegar á Selsvelli á Flúðum.

Í flokki pilta 18 ára og yngri var það Golfklúbbur Reykjavíkur sem fór með sigur af hólmi.
Hjá stúlkunum sigraði Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar.

Hjá stúlkum 15 ára og yngri var það Golfklúbbur Reykjavíkur Korpa sem endaði efstur.
Drengirnir léku á sama tíma á Flúðum og þar var það Golfklúbbur Reykjavíkur sem sigraði.

Golfklúbbur Vestmannaeyja telfdi ekki fram neinu stúlknaliði sem er miður en voru hinsvegar með lið í báðum aldurshópum drengja. Eldri hópurinn endaði í 9. sæti en lið GV skipuðu Kristófer Tjörvi Einarsson, Rúnar Gauti Gunnarsson, Andri Steinn Sigurjónsson og Karl Jóhann Örlygsson. Liðstjóri var Einar Gunnarsson.
Yngri hópurinn keppti á Flúðum og endaði í 13. sæti. Liðið skipuðu Daníel Franz Davíðsson, Birkir Freyr Ólafsson, Hannes Haraldsson og Arnar Berg Arnarson. Liðsstjóri var Anna Hulda Ingadóttir.
Eldri kylfinga
Lið eldri kylfingar kepptu einnig um helgina og telfdi GV fram bæði karla- og kvennaliði.
Á Borgarnesi kepptu karlarnir í 2. deild og enduðu í 4. sæti. Fyrir hönd GV kepptu Eyþór Harðarson, Guðjón Grétarsson, Hlynur Stefánsson, Ingi Sigurðsson, Jónas Jónasson, Jóhann Pétursson, Magnús Þórarinsson, Sigurður Þór Sveinsson og Sigurjón Pálsson. Liðsstjóri var Stefán Sævar Guðjónsson.
Konurnar kepptu á Akureyri, einnig í 2. deild og enduðu sömuleiðis í 4. sæti. Lið GV skipuðu Alda Harðardóttir, Harpa Gísladóttir, Hrönn Harðardóttir, Katrín Magnúsdóttir, Unnur Björg Sigmarsdóttir og Þóra Ólafsdóttir. Liðsstjóri var Katrín Harðardóttir.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.