Vélbáturinn Hellisey VE 503 fórst að kvöldi sunnudagsins 11. mars 1984 um kl. 23.00. Með Hellisey VE fórust: Hjörtur R. Jónsson skipstjóri 25 ára, Pétur Sigurðsson, 1. vélstjóri 21 árs, Engilbert Eiðsson 2. vélstjóri, 19 ára, og Valur Smári Geirsson matsveinn 26 ára. Guðlaugur Friðþórsson stýrimaður, sem var 22 ára gamall, komst einn lífs af. Guðlaugur synti 5 til 6 km í svartamyrkri og köldum sjó og náði landi á austanverðri Heimaey og braust um úfið hraun til byggða.
Þetta kemur fram á Wikipedia. Ótrúlegt afrek sem vakti athygli víða um heim. Þessa hefur síðan verið minnst með Guðlaugssundi í sundlauginni í Eyjum sem nú er lokuð vegna viðgerða. Um þetta afrek skrifar Ísólfur Gylfi Pálmason, fyrrum alþingismaður með meiru á Fésbókarsíðu sinni.
„Sund er dásamleg íþrótt og nytsöm. Í dag minnumst við þess að 42 ár eru síðan Guðlaugur Friðþórsson, stýrimaður háði hið frækilega afrek að synda í köldum sjó um sex km eftir að bátur hans Hellisey sökk. Landtakan var líka afrek út af fyrir sig. Ég hvet sundmenn til að minnast þessa, ég veit reyndar um marga sem hafa það fyrir hefð að synda þessa vegalengd bæði í Vestmannaeyjum og annarsstaðar í ylvolgum sundlaugum. Þessi “montmynd” af mér þar sem ég var að synda í vatni í Póllandi sem er ekkert afrek,“ segir Ísólfur Gylfi og má taka undir með honum.