Kirkjukór Landakirkju heldur árlega jólatónleika sína í kvöld, 11. desember og hefjast þeir kl. 20:00. Dagskráin verður sneisafull af hátíðlegum og hrífandi jólalögum líkt og undanfarin ár en kórinn hefur verið við stífar æfingar frá því snemma í haust.
Tónleikarnir eru tvískiptir rétt eins og undanfarin ár en dagskráin hefst í sal safnaðarheimilis Landakirkju og líkur svo upp í Landakirkju. Silja Elsabet Brynjarsdóttir syngur einsöng með kórnum sem er dyggilega stýrt af Kitty Kovács organista Landakirkju.
Miðaverði hefur verið stillt í hóf en það er litlar kr. 2.500 fyrir þessa tónlistarveislu á aðventu.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.