Kaka ársins afhent á Bessastöðum
Davíð Arnórsson, bakari hjá Stofan bakhús í Vestmannaeyjum og höfundur Köku ársins 2017, mætti ásamt syni sínum Degi Davíðssyni á Bessastaði í gærmorgun og afhendi frú Elizu Reid fyrstu kökuna. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, fékk fyrstu sneiðina af kökunni. Við afhendinguna sagði Davíð frá samsetningu kökunnar sem er lagskipt og inniheldur m.a möndlukókosbotn, hindberjahlaup og skyrfrómas með lime. �?á sagði Jón Albert Kristinsson, formaður Landssambands bakarameistara, LABAK, frá tilurð og framkvæmd keppninnar. Sala á kökunni hefst í bakaríum LABAK um allt land á morgun föstudaginn 17. febrúar og verður til sölu það sem eftir er ársins. Heitið, Kaka ársins, er skrásett vörumerki sem einungis félagsmönnum LABAK er heimilt að nota.
LABAK hefur um árabil efnt til árlegrar keppni um Köku ársins. Keppnin fer þannig fram að keppendur skila inn tilbúnum kökum sem dómarar meta og velja úr þá sem þykir sameina þá kosti að vera bragðgóð, falleg og líkleg til að falla sem flestum í geð og hlýtur hún titilinn Kaka ársins. Keppnin að þessu sinni var haldin í samstarfi við Mjólkursamsöluna og voru gerðar kröfur um að kakan innihéldi skyr frá MS. Dómarar í keppninni voru Margrét Kristín Sigurðardóttir frá Samtökum iðnaðarins, Aðalsteinn Magnússon, sölustjóri hjá Mjólkursamsölunni, og Gunnar �?rn Gunnarsson, bakarameistari og sölumaður hjá �?lgerðinni.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokkum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.