Kæru vinir og samherjar.
Í dag braut ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur blað í lýðveldissögunni, og því miður ekki til góðs. Það er þyngra en tárum taki að horfa upp á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur kollvarpa rótgrónum siðum og hefðum Alþingis, ekki vegna neyðar eða þjóðaröryggis, heldur vegna skattahækkana.
Kjarnorkuákvæðið, eins og það er kallað, er ekki nefnt svo að ástæðulausu. Það er neyðarúrræði og hefur einungis tvisvar verið beitt í lýðveldissögunni: Árið 1949 við inngöngu Íslands í NATO og árið 1959 til að afstýra því að öll starfsemi hins opinbera stöðvaðist. Aldrei síðan. Ekki í einu einasta máli sem hefur komið til kasta Alþingis. Ekki í Icesave. Ekki í Orkupakka þrjú. Ekki í EES-samningnum.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ákvað í dag að beita þessu ákvæði til að troða á þingræðishefð Íslendinga og þvinga í gegn umdeildu frumvarpi um hækkun veiðigjalda. Þannig hefur Kristrún Frostadóttir markað sín spor í þingsöguna og sett fordæmi fyrir ríkisstjórnir framtíðarinnar um að taka lýðræðið úr sambandi með beitingu kjarnorkuákvæðisins. Ekki vegna þjóðarvár. Ekki vegna neyðarástands. Heldur vegna skattahækkunar. Það er okkur sjálfstæðismönnum þvert um geð.
Sögulegur smánarblettur á ríkisstjórninni – hvað næst?
Kristrún áttar sig kannski ekki á því í dag, en þessi dagur verður skrifaður í sögubækurnar sem smánarblettur ríkisstjórnar hennar. Hún er fyrsti forsætisráðherrann í 66 ár sem mistekst að miðla málum á Alþingi. Það er og verður hennar arfleifð, á sínu fyrsta þingi sem forsætisráðherra.
Henni kann að þykja þægilegt að þagga niður í andstæðingum sínum í dag. En þeir sem ryðja burt leikreglunum þurfa að vera tilbúnir að spila leikinn án þeirra sjálfir. Með fordæminu sem Kristrún setti í dag fær hún ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar. Forsætisráðherra mun koma til með að sjá eftir þessum degi.
Ef ríkisstjórn Kristrúnar er tilbúin að beita þessu ákvæði til þess að hækka skatta, hvernig mun hún þá beita ákvæðinu næst?
Sjálfstæðisflokkurinn leggst gegn öllum skattahækkunum
Við sjálfstæðismenn höfum séð á fyrstu mánuðum þessarar ríkisstjórnar að hún megi ekki heyra á skatta minnst án þess að vilja hækka þá. Á næstu misserum ætlar ríkisstjórnin að hækka skatta á 80 þúsund Íslendinga með því að þvinga sveitarfélög til þess að hafa útsvarið í botni. Til stendur að ráðast á fjölskyldur með því að afnema samsköttun hjóna. Þá á að hækka skatta á ferðaþjónustuna og allan almenning með upptöku kílómetragjalds. Og ekki nóg með það, þá á að skattleggja sjálft heita vatnið hjá íbúum höfuðborgarsvæðisins. Vitleysan virðist ekki eiga sér nein takmörk, en við þekkjum hvernig vinstri stjórnir fortíðarinnar umgangast skattfé almennings og Kristrún telur Jóhönnustjórnina greinilega vera gott fordæmi um hvernig stýra eigi landinu. Jóhönnu auðnaðist þó að ljúka þingi með samningum ólíkt núverandi forsætisráðherra.
Áhrif skattastefnunnar munu koma fram. Á fjögurra ára kjörtímabili verður enginn óhultur. Allir munu komast að í röðinni. Og á meðan ríkisstjórnin gerir ráð fyrir nýjum skatttekjum án þess að taka á útgjaldavandanum, þá blasir svarið við: Ríkisstjórnin mun sækja peningana í vasa skattgreiðenda með einum eða öðrum hætti, og ef marka má daginn í dag, án umræðu.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur að undanförnu verið sakaður um sérhagsmunagæslu. Hvað slíka orðræðu varðar hef ég aðeins eitt að segja: Sjálfstæðisflokkurinn mun berjast gegn öllum skattahækkunum, sem leggjast munu á ykkur, fólkið í landinu, af sömu hörku..
Grunngildi gegn gerræði
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði í gær að þetta mál væri „orrustan um Ísland“. En orrustan um Ísland hefst ekki fyrr en á næsta ári, þegar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ætlar að þröngva okkur inn í Evrópusambandið.
Það er hægt að snúa þessari vegferð við. Því þó að ríkisstjórnin hafi kosið að beita valdi í stað umræðu, hroka í stað samráðs, þá munum við sjálfstæðismenn standa með fólkinu í landinu. Með lýðræðinu. Með fullveldinu. Með skynseminni.
Nú reynir á okkur sjálfstæðismenn að standa saman og sækja fram með grunngildin að vopni gegn forræðishyggjustjórn Kristrúnar – fyrir lýðræðið, fyrir atvinnulífið, fyrir lífsgæði almennings.
Baráttukveðjur,
Guðrún Hafsteinsdóttir,
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst