Markaðsráð kindakjöts gengst fyrir hinum árlega kjötsúpudegi nú á laugardaginn, fyrsta vetrardag. Markaðsráðið hefur skipulagt þetta verkefni mörg undanfarin ár með góðum árangri.
Kjötsúpudagurinn gengur út á það að fólk er hvatt með auglýsingum til að fagna vetri með því að elda íslenska kjötsúpu og nýta tækifærið og bjóða til sín vinum og ættingjum. Verslanir á Skólavörðustíg í Reykjavík bjóða gestum og gangandi upp á kjötsúpu á milli 14-16.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst