Engar skemmdir virðast hafa orðið á Kristbjörgu VE eftir að veiðarfæri skipsins festust í skrúfu þess í gær. Skipstjórinn segir þó að mikil hætta hafi verið á ferðum og að gott veður hafi skipt sköpum. Við skoðun kafara á stýrisbúnaði í dag kom í ljós að snurvoðin hafði vafist sex hringi utan um skrúfuna. Eftir að veiðarfærum var slakað niður tókst kafara að losa þau úr skrúfunni á innan við klukkustund. Kristbjörg heldur fljótlega aftur til veiða.