Handboltaparið Andri Heimir Friðriksson og Kristrún �?sk Hlynsdóttir eru á förum frá félaginu en Eyjafréttir fengu það staðfest rétt í þessu.
Andri hefur verið einn lykilmanna liðsins og skoraði 87 mörk í vetur en hann er uppalinn hjá ÍR. Kristrún �?sk er uppalinn hjá ÍBV, hún hefur leyst stöðu vinstri hornamanns hjá félaginu en núna eru ljóst að báðir hornamenn félagsins eru á förum.
Andri Heimir og Kristrún voru í samningsviðræðum við ÍBV en upp úr þeim slitnaði fyrir skemmstu. Félög frá höfuðborgarsvæðinu hafa sýnt Andra Heimi mikinn áhuga en hann varð Íslands- og bikarmeistari með ÍBV.