Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Landsbankinn og N1 á meðal þeirra sem bætast í ört stækkandi hóp hluthafa Eyjaganga.

Undirbúningur að gerð jarðganga milli lands og Vestmannaeyja hefur tekið stórt skref fram á við með innkomu nýrra hluthafa. Landsbankinn og N1 eru á meðal þeirra aðila sem nýlega hafa bæst í hluthafahóp Eyjaganga ehf., en allir nýir hluthafar hafa þegar greitt fyrir hlut sinn í félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar segir jafnframt að aðkoma Landsbankans og Íslandsbanka sé sérstaklega jákvæð í ljósi reynslu bankanna af fjármögnun Hvalfjarðarganga. Með þátttöku þeirra skapast sterkari grunnur fyrir undirbúning fjármögnunar á síðari stigum verkefnisins, komi til framkvæmda.

Samkvæmt upplýsingum frá félaginu eru núverandi rannsóknir ætlaðar til að meta fýsileika ganganna, en niðurstöður þeirra munu ráða næstu skrefum. Innkoma fjármálastofnana og stórra bakhjarla er sögð skýrt merki um aukinn vilja til að kanna verkefnið til hlítar.

Koma N1 inn í verkefnið er einnig talin mikilvæg. Fyrirtækið starfar á sviði samgangna og orkuskipta og sér tækifæri í uppbyggingu innviða á Suðurlandi. Þátttaka þess styrkir tengingu verkefnisins við framtíðarsýn um vistvænar samgöngur og aukna þjónustu við íbúa og atvinnulíf á svæðinu.

Fleiri félög hafa jafnframt gengið frá hlutafjárframlagi. Þar á meðal eru Bergur-Huginn, dótturfélag Síldarvinnslunnar, og útgerðarfélagið Bylgja VE 75, auk Eignarhaldsfélags Suðurlands hf. og Tölvun ehf. í Vestmannaeyjum.

Haft er eftir Haraldi Pálssyni, framkvæmdastjóra Eyjaganga að það sé gríðarleg viðurkenning fyrir verkefnið að þessir aðilar hafi ákveðið að gerast hluthafar í Eyjagöngum. „Að sjá bankana tvo sem gerðu Hvalfjarðargöngin möguleg mæta aftur til leiks skiptir miklu máli. Við erum með fagaðila sem þekkja þessa vegferð út og inn í hluthafahópi félagsins og teljum það afar mikilvægt skref.“

Hlutafjáraukningu félagsins er nú að ljúka og stefnt er að því að safna alls 200 milljónum króna í þessum fyrsta áfanga verkefnisins.

Nýjustu fréttir

Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum
Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.