Laxey - Fyrsta slátrun í nóvember
Öll átta kerin, sem eru 28 metrar á þvermál og rúmar 5000 rúmmetrar, eru nú komin með lax í ræktun. Sex af átta í áfanga tvö eru risin.

Áfangi eitt er kominn í framleiðslu, og er á áætlun. Öll átta kerin, sem eru 28 metrar á þvermál og rúmar 5000 rúmmetrar, eru nú komin með lax í ræktun. Vinnsluaðstaða LAXEY er brátt að verða fullbúin og er áætlað að fyrsta vinnsla fari fram í nóvember.

Samhliða þessu er uppbygging á áfanga tvö komin vel af stað; sex ker eru komin með útveggi og tvö þeirra einnig með þak. Áætlað er að útveggir og þök verði klár í nóvember.

Að baki verkefninu standa öflugir hluthafar, bæði innlendir og erlendir, og hafa margir þeirra komið inn í félagið á síðustu tveimur árunum í gegnum afar vel heppnuð hlutafjárútboð. Á síðasta ári bættust við meðal annars sterkir erlendir fjárfestar sem tengjast allri virðiskeðjunni frá fóðri til sölu.

Af Fésbókarsíðu Laxeyjar.

Nýjustu fréttir

„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.