Leikur ÍBV og Víkings í lokaumferð 1. deildar karla hefur verið færður um einn dag. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á morgun, miðvikudag en hefur verið færður til fimmtudags. Leikurinn hefst klukkan 19:30. Leikurinn skiptir engu máli fyrir lokastöðu liðanna, Eyjamenn eru öruggir með þriðja sætið og Víkingar með það fjórða.