Klefum í fangelsinu á Litla-Hrauni verður fjölgað um 50 – 60 og framundan er mikil uppbygging á svæðinu.
Horfið verður frá fangelsisuppbyggingu í Reykjavík að öðru leyti en því að gæsluvarðhald og fangamóttaka verður á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta kom fram á fundi Björn Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, með starfsfólki Litla-Hrauns á mánudag.