Ófært í Þorlákshöfn – Herjólfur bíður átekta fyrir utan höfnina - uppfært
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Ófært er sem stendur í Þorlákshöfn vegna veðurs og sjógangs, og hefur það haft áhrif á áætlun Herjólfs í dag.

Herjólfur lagði af stað frá Vestmannaeyjum klukkan 9:00 í morgun með stefnuna á Þorlákshöfn. Samkvæmt áætlun átti skipið að halda til baka klukkan 12:00, en ljóst er að töluverð seinkun verður á ferðum það sem eftir lifir dags.

Skipið heldur nú sjó fyrir utan Þorlákshöfn og bíður þess að aðstæður batni svo unnt verði að sigla inn í höfnina. Að sögn Ólafs Jóhanns Borþórssonar, framkvæmdastjóra Herjólfs, verða nánari upplýsingar um brottfarartíma gefnar út um leið og þær liggja fyrir.

Uppfært kl. 13.20.

Herjólfur komst til hafnar í Þorlákshöfn um kl. 13. Frekari tímasetningar á næstu ferðum verða uppfærðar þegar fregnir berast frá skipafélaginu.

Uppfært kl. 14.40.

Breyttur brottfaratími frá Vestmannaeyjum í dag. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 17:30 (Áður ferð kl. 16:00). Brottför frá Þorlákshöfn kl. 20:45.

Herjólfur stefnir á að sigla til Þorlákshafnar á morgun og þar til annað verður tilkynnt skv. áætlun. Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.

Nýjustu fréttir

Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.