Í Vestmannaeyjum er snælduvitlaust veður, stórviðri af austri með snjókomu. Klukkan 10.00 mældist vindhraðinn 38 metrar á sekúndu og hitinn var 1 stig. Mesti 10 mínútna meðalvindur var 41 m/s og mesta hviða 48 m/s. Veðrið gengur hratt yfir og verða sunnan 5 metrar, 4 stiga hiti og rigning klukkan 12.00.
„Viljum við góðfúslega benda ykkur á að appelsínugul veðurviðvörun er í gildi í fyrramálið frá klukkan 07.00. Því þarf að huga að lausamunum, en auk mikils vinds er búist við slyddu eða rigningu í fyrramálið. Hitastigið þarf ekki að lækka mikið frá spánni til þess að snjókoma myndist í staðinn,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum í gær.
Grunnskóli Vestmannaeyja sendi frá sér tilkynningu til foreldra í gær þar sem bent var á að appelsínugul veðurviðvörun tæki gildi frá klukkan 07.00 í morgun.
„Ef um appelsínugular viðvaranir er að ræða eru stofnanir alla jafna opnar og skólastarf óskert. Foreldrar og forráðamenn meta hvort börn þeirra mæti í skólann og ber þeim að tilkynna forföll til ritara eða umsjónarkennara strax að morgni. Bæjaryfirvöld ákveða, að höfðu samráði við lögreglu, hvort grípa þurfi til lokana,“ segir í tilkynningunni, og voru foreldrar beðnir um að fylgja að minnsta kosti yngstu nemendum inn í skólann í morgun.
Framhaldsskólinn sendi frá sér viðvörun í morgun. „Veðrið er mjög slæmt og einhverjir hafa þurft aðstoð við að komast inn af bílastæði skólans. Allt hefur samt farið vel. Veðrið er að versna og í ljósi þess ætlum við að fella niður næsta tíma og taka stöðuna klukkan 10.00.
Við mælum gegn því að koma upp í skóla fyrr en veðrið hefur gengið niður og búið er að taka ákvörðun um framhaldið. Það fer vel um okkur sem erum mætt og við erum ekki að fara neitt fyrr en veðrið gengur niður,“ segir í tilkynningunni sem var ítrekuð fyrir skömmu.
„Veðrið er ekkert að lagast hérna fyrir utan og því fellur niður kennsla það sem eftir er dags. Við ætluðum hvort sem er alltaf að hafa stuttan kennsludag í dag vegna árshátíðarinnar í kvöld, sem verður eins og áætlað var.
Kennararnir verða í sambandi við ykkur í gegnum Innu og þið fylgist með hvað þið eigið að gera í staðinn fyrir að mæta í tíma.“
Herjólfur sigldi til Þorlákshafnar klukkan 9.00 og þeysist einar 17 mílur á lensinu.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.