Í tilefni af degi tónlistarskólanna 2018 var Tónlistarskóli Vestmannaeyja með opið hús laugardaginn 17. febrúar sl. �?ar gafst áhugasömum tækifæri til að heimsækja skólann, ræða við kennarana og að sjálfsögðu prófa hljóðfærin.
Ýmsir tónleikar voru í boði frá hæfileikaríkum nemendum skólans sem eru á öllum aldri. Eftir tónleika var hægt að fara um skólann, sjá hvað er í boði, prófa og njóta góðra tóna. Eins og góðum viðburði sæmir voru léttar veitingar í boði fyrir gesti og gangandi sem voru hæstánægðir með framtak skólans og ekki síst þau allra yngstu.
120 nemendur læra við skólann
Jarl Sigurgeirsson starfandi skólastjóri Tónlistarskólans sagði í samtali við Eyjafréttir að dagurinn hefði gengið vel og gaman að sjá hvað margir litu við hjá þeim. Nemendur skólans eru núna 120 og er æft á allskonar hljófæri.
Opni dagurinn byrjaði á tónleikum hjá lúðrasveitinni. �??�?að eru núna 19 krakkar í lúðrasveitinni og er því skipt í yngri og eldri deild. �?ví miður hefur lúðrasveitarstarfið dalað nokkuð,�?? sagði Jarl.
Skólalúðrasveit Vestmannaeyja 40 ára
Skólalúðrasveit Vestmannaeyja fagnar 40 ára afmæli næsta fimmtudag. �??Skólalúðrasveit Vestmannaeyja er sjálfstæð en hefur þó mikil tengsl inn í Tónlistarskólann. �?að er gaman að segja frá því að Skólalúðrasveitin verður 40 ára núna næsta fimmtudag 22.febrúar. Við stillum fagnaðarlátunum í hóf þann daginn, en stefnum á að spila fyrir skátana um kvöldið sem eiga 80 ára afmæli sama dag,�?? sagði Jarl. Afmælinu verður samt fagnað með vorinu. �?? �?á munum við halda afmælistónleika þar sem sveitirnar munu spila ásamt gömlum félögum,�?? sagði Jarl að lokum.