Loðnan berst til Eyja
Loðnu landað úr Gullberginu. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Fyrsta loðna ársins hefur borist Vinnslustöðinni og er vinnsla komin á fullt. Veiðarnar hafa farið vel af stað og lofa fyrstu farmar vertíðarinnar góðu, að sögn Sindra Viðarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs. Frá þessu er greint á vef Vinnslustöðvarinnar – vsv.is.

„Gullberg fór út á föstudagskvöld og var komið á miðin á laugardag. Við hófum vinnslu strax á sunnudagsmorgun,“ segir Sindri. Huginn var á veiðum á sunnudag og mánudag og kom til Vestmannaeyja í gærkvöldi, þar sem þegar var hafist handa við vinnslu aflans.

Bræla var á miðunum í dag, en reiknað er með að Gullberg haldi aftur til veiða í kvöld. Í gær voru skipin við veiðar vestan við Ingólfshöfða. Fyrstu dagarnir gefa að sögn Sindra góð fyrirheit. „Allt er komið á fullt í vinnslunni, gæðin á loðnunni eru góð, hrognafylling er um 13% og loðnan nánast átulaus.“

Stutt myndband frá fyrstu lönduninni á vertíðinni má sjá hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.