Rannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt úr Hafnarfjarðarhöfn í gær til loðnukönnunar. Könnunin er í samstarfi við útgerðir uppsjávarveiðiskipa sem greiða fyrir þann aukakostnað Hafrannsóknastofnunar sem af henni hlýst.
Markmiðið er að safna upplýsingum um göngur og dreifingu loðnustofnsins austan og norðan við land. Slíkar upplýsingar hjálpa til að ákveða, hvenær það sé líklegast til árangurs að fara til mælinga á stærð loðnustofnsins og ná sem markverðustu mælingu á honum. Eins verði hægt að ákvarða það magn sem komið er inn á loðnumiðin og mögulega það magn sem kann að ganga snemma inn í hlýsjóinn suðaustanlands og tapast af mælisvæðinu, ef til þess kæmi.
Gert er ráð fyrir að þessi könnun geti varað í 1-2 vikur áður en farið verður til hefðbundinna stofnmælinga á báðum skipum Hafrannsóknastofnunar. Þær mælingar munu svo liggja til grundvallar að lokaveiðiráðgjöf á loðnu á þessari vertíð.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.