Loðnuleiðangur að hefjast
Rannsóknarskipið Árni Friðriksson.
Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson kom til Neskaupstaðar í morgun og þar eru einnig í höfn grænlenska skipið Polar Amaroq og Hákon EA sem munu taka þátt í loðnuleiðangri sem er að hefjast. Þá munu Bjarni Ólafsson AK og Ásgrímur Halldórsson SF einnig taka þátt í verkefninu.
Tíðindamaður heimasíðunnar fór um borð í Árna Friðriksson og hitti þar Birki Bárðarson leiðangursstjóra að máli. Birkir sagði að undirbúningsvinnu yrði sinnt í dag en hann vonaðist til að öll skipin létu úr höfn til mælinga og leitar í kvöld eða nótt. „Við þurfum að kvarða mæla í Árna Friðrikssyni og Hákoni  en mælar Polar Amaroq hafa þegar verið kvarðaðir. Í kvörðun mælanna felst að þeir séu stilltir þannig að þeir mæli allir eins. Bjarni Ólafsson og Ásgrímur Halldórsson koma með sem leitarskip en þau eru ekki með kvarðaða mæla. Það eru því fimm skip sem hefja mælingar og leit í kvöld eða nótt. Við gerum ráð fyrir að byrja út af Litladýpi og leita norður með landgrunnsbrúninni og einnig á landgrunninu. Saman munu skipin leita út af Austfjörðum og Norðausturlandi í fyrstu atrennu. Um borð í bæði Polar Amaroq og Hákoni verða þrír starfsmenn frá Hafrannsóknastofnun. Því miður er veðurútlit ekki sérstaklega gott en það er veðurgluggi næstu daga sem þarf að nýta vel. Því miður ríkir ekki mikil bjartsýni um loðnuvertíð en það er aldrei að vita. Loðnan hefur oft komið mönnum á óvart,“ sagði Birkir.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.