Guðmundur Nikulásson, framkvæmdastjóri Eimskips innanlands segir að verið sé að skoða hjá Siglingastofnun og Vegagerðinni til hvaða ráðstafana verði gripið í ljósi stöðu siglinga til Landeyjahafnar. Hann segir Lóðsinn vera á leiðinni í Landeyjahöfn til dýptarmælinga og í framhaldi af því munu hlutir vonandi skýrast með siglingar Herjólfs til Landeyjahafnar.