Lögreglan handtók tvo menn í nótt
Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók í nótt tvo menn sem grunaðir eru um aðild að innbrotum og þjófnaði í gagnaverum í Reykjanesbæ í desember. Ellefu hafa verið handteknir í tengslum við málið, en um er að ræða eitt stærsta þjófnaðarmál sögunnar enda þýfið talið nema rúmum 200 miljónum króna. Fréttablaðið greindi frá.
Skipulögð glæpastarfsemi
�?jófarnir höfðu á brott með sér um 600 tölvur en ljóst er að töluverðan viðbúnað þarf til að starfrækja þennan tækjabúnað á ný. Lögreglan fylgist því vel með raforkunotkun, en rannsókn málsins hefur lítið miðað áfram. Talið er að um sé að ræða skipulagða glæpastarfsemi. Tveir íslenskir menn sæta gæsluvarðhaldi vegna málsins en gæsluvarðhaldsúrskurður þeirra rennur út á morgun. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvort lögregla hyggist fara fram á áframhaldandi varðhald.
Lögregla óskað eftir aðstoð almennings í málinu og biður alla þá sem hafa orðið varir við eitthvað grunsamlegt að hafa samband. Búnaðurinn gæti verið í notkun hvar sem er á landinu. Sérstaklega er leitað eftir upplýsingum frá fyrirtækjum sem sjá um nethýsingu, rafverktökum og leigusölum húsnæðis eða gáma.

Nýjustu fréttir

Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Allt undir hjá ÍBV gegn KA í dag
ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.