Lundaball - Örnefnin í Hellisey eru mörg og litrík
Ungir menn á uppleið og konurnar þeirra. Grímur kokkur og Ásta María og Magnús og Adda.

Aldrei er góð vísa of oft kveðin og það á við um Lundaballið 1987 í Alþýðuhúsinu sem Helliseyingar höfðu veg og vanda að. Allt gert með slíkum glæsibrag ekkert félag bjargveiðimanna hefur komist með tærnar þar sem Helliseyingar voru með hælana.

Frá Lundaballinu er sagt frá í Fréttum þar sem segir: Guðjón Weihe lagði til nokkrar vísur á skemmtun sem haldin var nýverið, þar sem Óskar Svavarsson Helliseyingur las upp. Þar mátti heyra bæði glettni og virðingu fyrir náttúru Eyjanna og þeim karakterum sem mótað hafa lífið þar í gegn um tíðina.

 

 

 

Kiddi og Dúdda hafa lítið breyst þó tæplega 40 ár sé liðin frá því þessi mynd var tekin. Myndir Guðmundur Sigfússon.

 

HELLISEY

Vestri við lítum Hellisey háa,
Hafsins djásn á sundinu bláa.
Þar hefur fetað um brekkur og fláa
fullhugi kátur og hraustur.

Þar hafa kappar í hamrana sigið,
þar hafa Svabbi og Minkurinn migið
og migu þá jafnan í austur.

Þessi vísa minnir á líf og leik í Hellisey – þar sem náttúran er bæði falleg og krefjandi, og húmorinn hluti af daglegu lífi. Þeir Svabbi og Minkurinn koma við sögu, sem margir þekkja – og má segja að staðarákveðin meginvindátt hafi jafnvel stýrt vissum hlutum.

 

Hressir bræður, Gísli og Palli.

 

ELLIREY OG BJARNAREY

Veðurofsa vondum í
vantað getur festu.
Austurskerin eru því
yfirbyggð að mestu.

Hér má greina hvernig veðráttan og náttúruöflin hafa mótað byggð og búsetu – og hvernig austurskerin, Ellirey og Bjarnarey, hafa verið metin og nýtt í samræmi við aðstæður.

 

Tveir traustir, Jóhannes Gíslason og Svavar veislustjóri.

Flott uppstilling. Óskar Svabba, Anna Día, Jóna og Gvendur Fúsa í miklu stuði.

 

ÖRNEFNI Í HELLISEY

Vestur Flatir, Flúð og Nef,
Fles og Pollinn þekki.
Nú á Gýpur, stillistef
Steðja, Sám og Kekki.

Örnefnin í Hellisey eru mörg og litrík – þau bera með sér sögur, minningar og merkingu fyrir þá sem þekkja til.

Nú er aftur komið að Helliseyingum að halda Lundaball sem verður í Höllinni á laugardaginn, 27. september. Myndir Guðmundur Sigfússon.

Meira síðar.

Nýjustu fréttir

„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.