Handboltaparið Magnús Stefánsson og Ester Óskarsdóttir eru búin að framlengja samningum sínum hjá ÍBV til 1. júní 2014. Greint er frá þessu á heimasíðu ÍBV. Þau spiluðu bæði stór hlutverk með liðum ÍBV í vetur en karlaliðið varð í efsta sæti í 1. deild og leikur í úrvalsdeild á næsta ári en Magnús var valinn besti varnarmaður deildarinnar. Kvennalið ÍBV komst hins vegar í undanúrslit, bæði í Íslandsmóti og bikarkeppninni.