Knattspyrnulið ÍBV sótti ÍA heim upp á Akranes í dag en liðin léku þar um fimmta sætið í Fótbolti.net mótinu. Eyjamenn byrjuðu mjög vel í leiknum, komust í 0:3 en þá kom upp kæruleysi í leik ÍBV sem varð til þess að Skagamenn unnu sig inn í leikinn og lokatölur urðu 5:5 í ótrúlegum markaleik. Tveir danskir leikmenn voru til reynslu, Kenneth Stenild Nielsen, markvörður og Christian Olsen, sóknarmaður, sem skoraði tvö mörk í leiknum.