Leiðöngrum í stofnmælingu botnfiska – svokallað marsrall – á Íslandsmiðum er um það bil að ljúka um þessar mundir, en Árni Friðriksson er í síðustu togunum úti fyrir Norðurlandi, sjá hér. Fjögur skip tóku þátt í verkefninu, togararnir Breki og Þórunn Sveinsdóttir og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir.
Um borð í þessum fjórum skipum unnu ríflega 100 manns; 32 rannsóknamenn og um 70 áhafnarmeðlimir. Þegar rallinu lýkur hefur verið togað er á 580 stöðvum á 20-500 m dýpi umhverfis landið. Frá þessu er greint í frétt á vef Hafrannsóknastofnunnar.
Verkefnið er gríðarlega viðfangsmikið og eitt af stærstu verkefnum Hafrannsóknastofnunar. Gögnum sem safnað er gegna lykilhlutverki í stofnmati og veiðiráðgjöf fyrir flestar íslenskar botnfisktegundir. Gögnin eru einnig mikilvæg fyrir ýmiskonar vistfræðirannsóknir.
Í verkefninu er gögnum safnað um fiska sem flokkast ekki sem nytjategundir og eru þau notuð til að skoða breytingar í tegundafjölbreytileika, m.a. með tilliti til breytinga í hitastigi sjávar. Auk þess var botndýrum sem fást sem meðafli safnað á nokkrum stöðvum um borð í Árna Friðrikssyni til að fylgjast með lífmassa, fjölbreytileika og útbreiðslu botndýra við Ísland.
Ráðgert að helstu niðurstöður liggi fyrir strax eftir páska og verða þær birtar á nýjum stofnmælingarvef Hafrannsóknastofnunar, sjá nánar hér.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.